Certified Pre-Owned
Vottaður notaður bíll
Allir vottaðir notaðir Tesla bílar eru sérvalnir og hefur þeim verið ekið minna en 150.000km.
Skoðað vandlega
Allir vottaðir notaðir bílar eru skoðaðir í þaula og endurbættir af reyndu tæknifólki okkar. Þessi ítarlega skoðun nær til eftirfarandi meginþátta: almenn skoðun, útlit, hjólbarðar, virkni, stjórntæki/örtölvur, skottlok, húdd, sæti, innanrými, rafhlaða og hemlar.
Að auki eru öll ökutæki sannreynd sem laus við skemmdir á burðarvirki og öryggispúðum.
Ábyrgð
Með hverju vottuðum notuðum Tesla bíl fylgir víðtækur ábyrgðarpakki:
- Takmörkuð ábyrgð á notuðu ökutæki
- Allt sem eftir stendur af upphaflegri takmarkaðri ábyrgð á nýju ökutæki, sem og takmarkaðri ábyrgð á rafhlöðu og rafmótor
Þú getur séð hvaða ábyrgð fylgir hverju ökutæki á upplýsingasíðu þess á vefsvæði okkar fyrir bíla á lager.
Aðstoð allan sólarhringinn
Vegaaðstoð Tesla í Evrópu er innifalin á meðan takmörkuð ábyrgð á notuðu ökutæki gildir.
Vottaðir notaðir Tesla-bílar eru allir uppfærðir með Enhanced Autopilot og þeim fylgir 30 daga ókeypis prufuáskrift að Premium-tengingu.
Enhanced Autopilot
Njóttu þess nýjasta hvað varðar öryggi og þægindi innan okkar háþróuðu tækni til að bæta akstursupplifun þína:
Prufuáskrift að Premium-tengingu í 30 daga
Premium-tenging veitir aðgang að öllum tengieiginleikum gegnum farsímatengingu, auk Wi-Fi, þannig að eigendaupplifunin verði sem auðveldust og best. Premium-tenging verður í boði sem mánaðarleg áskrift eftir að prufutímabilið tekur enda.
Val á bíl á lager
Skoðaðu úrvalið bæði af ytra útliti og innréttingum í vottuðum notuðum bílum.
Fjármögnun og kaupleiga
Fáðu aðgang að sérstökum fjármögnunar- og kaupleigusamningarkjörum. Skoðaðu verð þeirra bíla sem við höfum á lager. Ráðgjafar okkar eru þér til reiðu til að hjálpa þér að finna þann fjármögnunarkost sem hentar þér best.
Skoðaðu Algengar spurningar um sölu, afhendingu og ábyrgðarskilyrði .